Fara beint í efnið
Móðaloftgæði á Íslandi

Stóriðja

Hér eru álver og önnur iðjuver landsins, stöðvarnar sem vakta þau og síumælingarnar sem Móða hefur. Flúoríði og PAH-efnum er safnað á síur sem eru efnagreindar á rannsóknarstofu. Niðurstöðurnar koma úr vöktunarskýrslum rekstraraðila og eru handfærðar inn í Móðu.

7 iðjuver7 síustöðvar7 með gögnum í Móðugögn frá 2017 til 2025

Í töflunum er ein lína fyrir hverja síustöð og hvert efni og einn dálkur fyrir hvert ár. Í flúoríðlínunum stendur sumarmeðaltal gaskennds flúoríðs (apríl–september) í sömu einingu og starfsleyfi svæðisins notar. Talan er rauð ef meðaltalið fór yfir mark sem var í gildi á stöðinni það ár. Séu of fáir sumarmánuðir mældir stendur fjöldi mældra mánaða, og í öðrum línum fjöldi sýna. Auður reitur þýðir að engin gögn eru komin inn fyrir það ár.

Grundartangi

Alur álvinnsla (endurvinnsla álgjalls), Elkem Ísland (kísiljárnver), Norðurál (álver)

Rauntímastöðvar
Grundartangi, Gröf; Grundartangi, Kríuvarða; Grundartangi, Melahverfi; Grundartangi, Stekkjarás
Síumælingar
Kríuvarða (F og PAH, síusöfnun með dælu, Norðurál) — innan iðnaðarsvæðis frá sumrinu 2025, þar sem starfsleyfismarkið gildir ekki; Gröf (F, síusöfnun með dælu, Norðurál og Elkem Ísland)
Starfsleyfismörk
Gaskennt flúoríð 0,30 µg F/m³ að meðaltali í apríl–september, utan iðnaðarsvæðis samkvæmt aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar (áður utan þynningarsvæðis), frá sumrinu 2016.
Heildarflúor 0,40 µg F/m³ að meðaltali í apríl–september, utan iðnaðarsvæðis samkvæmt aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar (áður utan þynningarsvæðis), frá sumrinu 2016. Heimild: starfsleyfi Norðuráls Grundartanga frá 16. desember 2015, gr. 1.10, eins og henni var breytt með ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar 19. júní 2025.
StöðEfni2017201820192020202120222023202420252026
KríuvarðaFlúoríðµg F/m³0,35
KríuvarðaPAH12
GröfFlúoríðµg F/m³0,02

Straumsvík

Rio Tinto á Íslandi (álver)

Rauntímastöðvar
Hafnarfjörður, Hvaleyrarholt; Garðabær, Garðaholt; Hafnarfjörður, Lónakot, Rio Tinto; Hafnarfjörður, Norðurhella
Síumælingar
Hvaleyrarholt (F, síusöfnun með dælu, Rio Tinto á Íslandi)
StöðEfni2017201820192020202120222023202420252026
HvaleyrarholtFlúoríðµg F/m³0,020,020,030,02

Reyðarfjörður

Alcoa Fjarðaál (álver)

Rauntímastöðvar
Reyðarfjörður, Hjallaleyra, stöð 1; Reyðarfjörður, Ljósá, stöð 2; Reyðarfjörður, Hólmar, stöð 3; Reyðarfjörður, Miðstrandareyri, stöð 4
Síumælingar
Hjallaleyra, stöð 1 (F og PAH, síusöfnun með dælu, Alcoa Fjarðaál); Ljósá, stöð 2 (F og PAH, síusöfnun með dælu, Alcoa Fjarðaál) — innan þynningarsvæðis, þar sem starfsleyfismarkið gildir ekki; Hólmar, stöð 3 (F og PAH, síusöfnun með dælu, Alcoa Fjarðaál); Miðstrandareyri, stöð 4 (F og PAH, síusöfnun með dælu, Alcoa Fjarðaál)
Starfsleyfismark
Gaskennt flúoríð 0,30 µg HF/m³ að meðaltali í apríl–september, utan þynningarsvæðis, til og með sumrinu 2024. Í nýju starfsleyfi Fjarðaáls frá 13. desember 2024 (UST202003-451) er hvorki mark á flúoríð í lofti né þynningarsvæði, svo markið á ekki við frá sumrinu 2025. Heimild: eldra starfsleyfi Alcoa Fjarðaáls, eins og markið er tilgreint í Umhverfisvöktun Alcoa Fjarðaáls 2023, bls. 20.
StöðEfni2017201820192020202120222023202420252026
Hjallaleyra, stöð 1Flúoríðµg HF/m³0,060,140,150,120,090,09
Hjallaleyra, stöð 1PAH996644
Ljósá, stöð 2Flúoríðµg HF/m³0,350,620,400,510,370,56
Ljósá, stöð 2PAH482534
Hólmar, stöð 3Flúoríðµg HF/m³0,150,180,170,270,150,16
Hólmar, stöð 3PAH362524
Miðstrandareyri, stöð 4Flúoríðµg HF/m³0,060,070,030,020,020,02
Miðstrandareyri, stöð 4PAH76324

Bakki við Húsavík

PCC BakkiSilicon (kísilver)

Rauntímastöðvar
PCC suður; PCC norður
Síumælingar
Engar skráðar á svæðinu

Sauðárkrókur

Steinull (steinullarverksmiðja)

Rauntímastöðvar
Engin loftgæðastöð
Síumælingar
Engar skráðar á svæðinu