Fara beint í efnið
Móðaloftgæði á Íslandi

Um Móðu

Hvað er Móða?

Móða sýnir loftgæðamælingar á Íslandi í samhengi. Hún sýnir hvernig hver mæling stendur miðað við heilsuverndarmörk, hvaðan mengunin berst líklega og hvernig staðan hefur þróast frá 2019. Gögnin koma að mestu óbreytt úr opinni gagnaþjónustu Umhverfis- og orkustofnunar, auk nokkurra skynjara úr opnum skynjaranetum (sjá hér að neðan). Móða er einkaframtak og ekki á vegum stofnunarinnar.

Gögnin og tölurnar

Öll gögn koma frá Umhverfis- og orkustofnun (UOS) og eru birt óbreytt. Mælingar líðandi sólarhrings koma úr opnu loftgæðaviðmóti stofnunarinnar. Sögulegu gildin koma úr ársskrám hennar til og með 2024 og af loftgaedi.is eftir það, og ársyfirlit hverrar stöðvar merkir hvaðan hvert ár kemur. Vindur kemur frá Open-Meteo og Veðurstofu Noregs (MET Norway) og kortagrunnurinn frá Landmælingum Íslands.

Móða ber mælingar við heilsuverndarmörk úr reglugerð. Mörk PM₂,₅ eru ársmeðaltal, svo gildi sólarhringsins standa án samanburðar. Öll mörkin og hvað tölurnar þýða.

  • Tölurnar koma beint úr sjálfvirkum mælum, eins og þær bárust. Mælitæki geta sýnt röng gildi.
  • Mælir getur bilað. Tala sem stendur föst klukkustundum saman, mælist langt undir núlli eða tekur stakan topp fær viðvörun um að mælirinn gæti sýnt rangt gildi; lítillega neikvæð gildi birtast sem undir greiningarmörkum.
  • Smáskynjarar eru merktir. Þeir eru ekki kvarðaðir á móti mælistöð og tölur þeirra eru ekki að fullu sambærilegar.
  • Tímar eru UTC. Ísland er á UTC allt árið.

Skynjarar utan UOS

Nokkrir mælar á Íslandi birta gögn opinberlega án þess að vera á loftgæði.is. Móða sýnir þá með stöðvum UOS en merkir þá sem smáskynjara — lítil tæki sem eru ekki kvarðuð á móti mælistöð og gefa því ekki að fullu sambærileg gildi — og nefnir alltaf netið sem birtir þá. Netin gefa aðeins nýjustu mælingu, svo saga þeirra hjá Móðu nær aðeins aftur til þess að Móða byrjaði að safna henni.

  • AirGradient— mælar einstaklinga. Gögnin eru birt undir leyfinu CC BY 4.0.
  • sensor.community— alþjóðlegt borgaravísindanet. Gögnin eru birt undir leyfinu ODbL 1.0.
  • WeatherLink— veðurstöðvar Davis með loftgæðamæli. Opna kortið birtir aðeins loftgæðavísitölu, svo PM₂,₅-gildið sem Móða sýnir er umreiknað úr henni og er nálgun, ekki mæligildi.

Hvað Móða er ekki

Móða er ekki viðvörunarkerfi og gefur hvorki opinberar spár né heilsuráð; líkanaspár eru sýndar til fróðleiks og merktar sem slíkar. Í eldgosum eða þegar mengun er mikil skaltu fylgjast með loftgaedi.is og Veðurstofu Íslands, sem gefa út opinberar spár og leiðbeiningar.

Hvernig á að nota Móðu

Hvernig er staðan núna?
Veldu þitt svæði eða næstu stöð. Liturinn sýnir hlutfall af heilsuverndarmörkum: undir 50%, 50–100% eða yfir mörkum.
Við hvaða tölur er miðað?
Öll mörkin standa á viðmiðasíðunni, ásamt því hvaða meðaltalstími á við hvert þeirra og hvert þau eru sótt.
Hvaðan kemur mengunin?
Skoðaðu loftdreifilíkanið. Vindörvarnar sýna úr hvaða átt loftið berst. Líkanið er gróf áætlun, ekki mæling.
Er þetta óvenjulegt?
Opnaðu síðu stöðvarinnar og berðu stöðuna saman við fyrri ár.
Er mælingin traust?
Athugaðu merkingar við stöðina. Gögnin koma úr sjálfvirkum mælum sem geta sýnt ranga tölu, og bilaðir eða ókvarðaðir skynjarar eru merktir sérstaklega.

Fyrir hverja?

Íbúa sem vilja vita hvað er í loftinu, fólk sem býr nálægt iðnaðar- eða jarðhitasvæðum, og alla sem vilja skoða þróun loftgæða yfir lengri tíma.

Persónuvernd

Móða notar engar vafrakökur. Heimsóknir eru taldar nafnlaust með Vercel Web Analytics: hvaða síður eru opnaðar og hvaðan komið er, án auðkennis sem fylgir þér milli daga eða vefja. Tilgangurinn er aðeins að sjá hvaða hlutar síðunnar eru notaðir.

Tilkynningar í vafra: aðeins er geymd slóðin sem vafrinn gefur fyrir tilkynningar og hvaða stöðvar þú vaktar — ekkert nafn, netfang né símanúmer. Áskriftin eyðist þegar þú hættir, eða sjálfkrafa eftir hálft ár án heimsóknar.

Uppáhaldsstöðvar: listinn er geymdur í vafranum þínum (localStorage) og fer aldrei til okkar. Hann fylgir því vafranum en ekki þér — sími og tölva eiga hvort sinn lista.

Leit eftir heimilisfangi: heimilisfangið fer um þjón Móðu til OpenStreetMap (Nominatim), sem skilar hnitum, og næstu stöðvar eru fundnar út frá þeim. OpenStreetMap sér ekki vistfang þitt — aðeins að Móða spurði. Leitin er skráð til að sjá hvar á landinu áhugi á loftgæðum er mestur: heimilisfangið sem OpenStreetMap fann (ekki það sem þú slóst inn), póstnúmer, sveitarfélag, dagur og hnit námunduð að um 100 m. Hvorki vistfang, vafri né tími dags er skráður, svo færslan tengist þér ekki. Síðustu 10.000 leitir eru geymdar og eldri falla út. Upplýsingarnar eru aðeins notaðar til yfirlits af þeim sem heldur síðunni úti og eru ekki afhentar öðrum.

Tilkynningar í tölvupósti eru ekki í boði sem stendur.

Ábendingar

Sérðu tölu sem stemmir ekki, stöð sem vantar eða eitthvað sem mætti gera betur — sendu ábendingu. Það þarf ekkert nema textareit.