Hvar er mælt
Stöðvastaðan segir hvaða stöðvar skila gögnum. Hér er spurt að öðru: hvað er ekki mælt, og hvar. Sú spurning snýst um eyðurnar milli stöðvanna og enginn einstakur mælir svarar henni.
Efnin
Netið var byggt utan um jarðvarma og iðnað — utan um það sem rekstraraðili er krafinn um að vakta. Það sést á því hvaða efni eru mæld víðast. Rákuðu bútarnir eru grófir skynjarar, sem gefa tölur en eru ekki kvarðaðir á móti nákvæmnismæli.
Sæki stöðvar…
Landshlutarnir
Svifryksdálkurinn telur aðeins nákvæmnismæla. Landshluti sem mælir svifryk með grófum skynjara einum er merktur sérstaklega — hann á tölur, en ekki tölur sem standast samanburð við heilsuverndarmörk.
Sæki stöðvar…
Uppspretturnar
Uppspretta án mælis í grennd er ekki vöktuð þótt stöðvar séu til annars staðar á landinu. Hér er talin fjarlægð frá hverri uppsprettu í næstu stöð sem mælir það efni sem hún losar — ekki í næstu stöð yfirleitt.
Sæki stöðvar…
Hversu vel er mælt
Stöð sem skilar helmingi ársins mælir ekki nema hálft. Hér er miðað við 90% gagnaheimtur og taldar þær stöðvar sem ná því ekki. Gæðakröfur reglugerðar 920/2016 um lágmarksgagnaheimtur eru mismunandi eftir efnum og tilgangi mælingar; talan hér er eitt viðmið yfir allt netið en ekki tilvitnun í þær.
Hæsti mæliþáttur hverrar stöðvar ræður. Stöð sem mælir fjögur efni og hefur misst einn mæli er ekki í hálfum skilum heldur í fullum skilum á því sem hún mælir — bilaði mælirinn kemur fram í efnayfirlitinu hér að ofan.
Sæki samantekt…
Um einstakar stöðvar — hverjar skila, hverjar þegja og hverjar eru aflagðar — sjá stöðvastöðu.