Loftdreifilíkan
Hvert berst mengunin frá uppsprettum landsins — álverum, kísilverum, jarðvarmavirkjunum og eldgosum. Vindurinn ræður stefnunni: í sunnanátt berst hún norður frá uppsprettunni, og mælistöð sem verður á vegi stróksins ræður tölunni.
Kortið sýnir líðandi klukkustund og hvert vindurinn ber næstu sex til tólf klukkustundir.
Áætlun út frá vindi og mælingum — ekki mæling. Gerir ráð fyrir sléttu landi, stöðugum vindi og engum efnahvörfum.
Hvað myndin segir og hvað hún segir ekkiÁætlun kvörðuð á mælingu — hvorki mæling né spá um losun
Losunartölur eru hvergi til í rauntíma, svo líkanið er keyrt öfugt: vindurinn segir hvert strókurinn berst, mælistöð sem hann fer yfir segir hvað berst til hennar, og úr því er reiknað hvaða losun þyrfti til. Með þeirri tölu er flöturinn teiknaður þar sem engin stöð er.
Við stöðina stemmir talan við mælinguna — það er skilgreining en ekki sönnun þess að líkanið sé rétt. Milli stöðva er hún áætlun sem gengur út frá sléttu landi, stöðugum vindi og engum efnahvörfum. Ísland er ekki slétt: í firði og á heiði stýrir landslagið strókinum meira en nokkur stuðull í líkaninu.
Beri vindurinn ekki yfir neina stöð er ekkert reiknað. Þá sýnir kortið gráan flöt þangað sem hann ber, sem er réttari niðurstaða en tala sem á sér enga stoð. Vindurinn kemur frá Veðurstofu Noregs og er líkangildi en ekki mæling.