Fara beint í efnið
Móðaloftgæði á Íslandi

Mörk á árinu

Flest heilsuverndarmörk eru ekki „aldrei yfir“ heldur „ekki oftar en“. Svifryk (PM₁₀) má fara yfir sólarhringsmarkið 35 sinnum á almanaksári. Hér er talið hversu oft hver stöð hefur farið yfir hvert mark og borið við leyfðan fjölda.

Árið 2026 til og með 7. nóvember. Samkvæmt mælingunum hefur ein stöð farið fleiri skipti yfir mörk en leyfilegt er: Mývatn, Vogar (H₂S). Mælitæki geta sýnt röng gildi, og eitt bilað gildi getur ráðið niðurstöðunni þar sem ekkert má fara yfir. Dagar með grun um mælitruflun eru ekki taldir; þeir eru merktir í töflunum.

H₂S — sólarhringsmeðaltal yfir 50 µg/m³

Má aldrei fara yfir. Markið er hlaupandi 24 klst. meðaltal; talið er hvern dag sem það fór yfir.

StöðSkipti yfir, borið við leyfðan fjöldaSkipti
Mývatn, Vogar2 dagar

Fóru aldrei yfir: Ásbrú (mælt 12%), Garðabær, Garðaholt, Garður, Grindavík, Nesvegur, Grundartangi, Gröf, Grundartangi, Melahverfi, Hafnir, Hveragerði, Leikskólinn Óskaland, Keflavík, Vatnaveröld, Kópavogur, Dalsmári, Kópavogur, Hörðuvallaskóli, Kópavogur, Lækjarbotnar, Waldorfskóli, Mývatn, Reykjahlíð, Grunnskóli (mælt 85%), Njarðvík, Stapaskóli, Reykjaheiði, Skíðaskáli (mælt 82%), Reykjavík, Grensás, Reykjavík, Laugarnes (mælt 70%), Reykjavík, Norðlingaholt, Sandgerði, Selfoss, Úlfarsárdalur, Lambhagi (mælt 4%), Vogar.

Grundartangi, Kríuvarða: stöðin er ekki talin hér, því hún stendur innan iðnaðarsvæðis Grundartanga, þar sem vinnuverndarmörk gilda en ekki heilsuverndarmörk (7.000 µg/m³ að meðaltali yfir 8 klukkustundir). Hæsta klukkustundargildi ársins var 195 µg/m³, svo átta stunda meðaltalið fór aldrei yfir vinnuverndarmörkin.

Nesjavellir: stöðin er ekki talin hér, því hún stendur innan iðnaðarsvæðis við Nesjavallavirkjun, þar sem vinnuverndarmörk gilda en ekki heilsuverndarmörk (7.000 µg/m³ að meðaltali yfir 8 klukkustundir). Hæsta klukkustundargildi ársins var 2.933 µg/m³, svo átta stunda meðaltalið fór aldrei yfir vinnuverndarmörkin.

Hellisheiðarvirkjun: stöðin er ekki talin hér, því hún stendur innan iðnaðarsvæðis virkjunarinnar á Hellisheiði, þar sem vinnuverndarmörk gilda en ekki heilsuverndarmörk (7.000 µg/m³ að meðaltali yfir 8 klukkustundir). Hæsta klukkustundargildi ársins var 271 µg/m³, svo átta stunda meðaltalið fór aldrei yfir vinnuverndarmörkin.

SO₂ — klukkustundargildi yfir 350 µg/m³

Má fara yfir 24 sinnum á almanaksári (klukkustundir).

StöðSkipti yfir, borið við leyfðan fjöldaSkipti
Grindavík, Nesvegur3 klukkustundir af 24
Grundartangi, Gröf2 klukkustundir af 24
Kópavogur, Hörðuvallaskóli1 klukkustund af 24

Fóru aldrei yfir: Akureyri, Strandgata (við Hof) (mælt 82%), Ásbrú (mælt 12%), Garðabær, Garðaholt, Garður, Grundartangi, Kríuvarða, Grundartangi, Melahverfi, Hafnarfjörður, Hvaleyrarholt, Hafnarfjörður, Lónakot, Rio Tinto (mælt 6%), Hafnir, Hellisheiðarvirkjun, Hveragerði, Leikskólinn Óskaland, Keflavík, Vatnaveröld, Kópavogur, Dalsmári, Njarðvík, Stapaskóli, Reykjavík, Grensás, Reykjavík, Laugarnes, Reykjavík, Norðlingaholt, Sandgerði, Selfoss, Vogar.

SO₂ — sólarhringsmeðaltal yfir 125 µg/m³

Má fara yfir 3 sinnum á almanaksári (dagar).

StöðSkipti yfir, borið við leyfðan fjöldaSkipti
Selfoss1 dagur af 3

Fóru aldrei yfir: Akureyri, Strandgata (við Hof) (mælt 82%), Ásbrú (mælt 12%), Garðabær, Garðaholt, Garður, Grindavík, Nesvegur, Grundartangi, Gröf, Grundartangi, Kríuvarða, Grundartangi, Melahverfi, Hafnarfjörður, Hvaleyrarholt, Hafnarfjörður, Lónakot, Rio Tinto (mælt 6%), Hafnir, Hellisheiðarvirkjun, Hveragerði, Leikskólinn Óskaland, Keflavík, Vatnaveröld, Kópavogur, Dalsmári, Kópavogur, Hörðuvallaskóli, Njarðvík, Stapaskóli, Reykjavík, Grensás, Reykjavík, Laugarnes, Reykjavík, Norðlingaholt, Sandgerði, Vogar.

PM₁₀ — sólarhringsmeðaltal yfir 50 µg/m³

Má fara yfir 35 sinnum á almanaksári (dagar).

StöðSkipti yfir, borið við leyfðan fjöldaSkipti
Reykjavík, Grensás20 dagar af 35
Kópavogur, Dalsmári16 dagar af 35
Akureyri, Strandgata (við Hof)1 dagur ekki talinn — grunur um mælitruflun9 dagar af 35
Reykjavík, Laugarnes5 dagar af 35
Kópavogur, Hörðuvallaskóli3 dagar af 35
Garðabær, Garðaholt2 dagar af 35
Grundartangi, Gröf2 dagar af 35
Keflavík, Vatnaveröldmælt 64% ársins2 dagar af 35
Keflavíkurflugvöllur, Flughlað2 dagar af 35

Fóru aldrei yfir: Reykjavík, Húsdýragarðurinn.

NO₂ — klukkustundargildi yfir 200 µg/m³

Má fara yfir 18 sinnum á almanaksári (klukkustundir).

StöðSkipti yfir, borið við leyfðan fjöldaSkipti
Garðabær, Garðaholt9 klukkustundir af 18

Fóru aldrei yfir: Akureyri, Strandgata (við Hof), Grundartangi, Gröf (mælt 70%), Grundartangi, Kríuvarða, Kópavogur, Dalsmári, Kópavogur, Hörðuvallaskóli, Reykjavík, Grensás, Reykjavík, Húsdýragarðurinn, Reykjavík, Laugarnes (mælt 81%).

NO₂ — sólarhringsmeðaltal yfir 75 µg/m³

Má fara yfir 7 sinnum á almanaksári (dagar).

StöðSkipti yfir, borið við leyfðan fjöldaSkipti
Garðabær, Garðaholt3 dagar af 7

Fóru aldrei yfir: Akureyri, Strandgata (við Hof), Grundartangi, Gröf (mælt 70%), Grundartangi, Kríuvarða, Kópavogur, Dalsmári, Kópavogur, Hörðuvallaskóli, Reykjavík, Grensás, Reykjavík, Húsdýragarðurinn, Reykjavík, Laugarnes (mælt 81%).

Hvernig er talið

Sólarhringsmörk: dagar þar sem meðaltal sólarhringsins fór yfir markið. Aðeins dagar með a.m.k. 18 mældum klukkustundum eru taldir.

H₂S ber hlaupandi 24 klst. meðaltal. Frá 2025 er það reiknað úr klukkustundunum og talinn hver dagur sem það fór yfir markið; fyrir 2025 er aðeins meðaltal almanaksdags til, og þá er talan lágmark.

Klukkustundarmörk (SO₂ og NO₂): klukkustundir yfir markinu. Frá 2025 eru þær taldar nákvæmlega. Í ársskrám Umhverfis- og orkustofnunar 2019–2024 er aðeins hæsta gildi hvers dags geymt, svo þar er talið einu sinni fyrir hvern dag sem fór yfir. Sú tala er merkt a.m.k. og er lágmark.

Grunur um mælitruflun: frá 2025 er dagur ekki talinn ef mælirinn sýndi þann dag gildi sem eru nær örugglega bilun en ekki loft — annaðhvort stökk upp í ótrúverðugan styrk (H₂S yfir 2.000 µg/m³, svifryk yfir 500 µg/m³ í einni eða tveimur klukkustundum) sem er a.m.k. fimmtíu- til hundraðfalt gildin á undan og eftir og hverfur jafnharðan, eða sama gildi yfir heilsuverndarmörkum sex klukkustundir í röð eða lengur. Reglurnar eru hafðar þröngar: brennisteinsdíoxíð úr eldgosum og brennisteinsvetni við jarðvarmavirkjanir geta í raun rokið upp á skömmum tíma, og þau atvik eru talin. Dagurinn er merktur í töflunni en ekki falinn, og aðrar villur í mælingum geta staðið eftir.

Gloppur: stöð sem mældi minna en 90% ársins er merkt með hlutfallinu og stendur daufari. Talan nær þá aðeins yfir mældu dagana og getur verið langt undir raunverulegum fjölda — gögn af loftgaedi.is vantar sums staðar stóra hluta ársins.

Smáskynjarar og farstöðvar eru ekki með. 2019–2024 eru úr ársskrám Umhverfis- og orkustofnunar; 2025 og síðar af loftgaedi.is eins og þau bárust. Mælitæki geta sýnt röng gildi. Leyfður fjöldi er úr reglugerð 920/2016 og reglugerð 514/2010 um brennisteinsvetni; sjá viðmið og heilsuverndarmörk.