Losun frá álverum
Hve mikið flúoríð, ryk og brennisteinsdíoxíð fer út í loftið frá kerskálum álveranna, í kg á hvert tonn áls sem framleitt er. Tölurnar eru ársgildi úr grænu bókhaldi og samfélagsskýrslum fyrirtækjanna sjálfra, eins og þær standa þar.
Hvert rit sýnir eitt efni frá einu álveri. Rit í sömu línu hafa sama kvarða. Rauða strikalínan er ársmark starfsleyfisins sem gilti það ár; hún stendur aðeins þar sem markið er þekkt. Nýtt mark er talið gilda frá fyrsta heila ári eftir að leyfið var gefið út. Rauður punktur er ár yfir markinu. Sækja tölurnar sem CSV, með heimild við hverja.
- Rio Tinto á Íslandi, 2016–2021: Annað þrep leyfisins frá 2005 (upp að 330.000 tonnum), sem fyrirtækið setur í skýrslur sínar frá 1.1.2016 af því að framleiðslan fór yfir 200.000 tonn; fyrsta þrepið var 1,0 / 1,5 / 21.
Heildarflúoríð kg á tonn áls
Loftkennt flúoríð og flúoríð bundið ryki, samanlagt.
- Norðurál: Mark á heildarflúor við ársframleiðslu undir 320.000 tonnum; yfir henni er það 0,43.
- Rio Tinto á Íslandi: Mark við ársframleiðslu undir 330.000 tonnum; stærðarskilyrðið var fellt út 29.8.2024 en gildið stendur.
Ryk kg á tonn áls
Ryk frá kerskálum, um reykháf og ræstiloft.
- Rio Tinto á Íslandi: Mark við ársframleiðslu undir 330.000 tonnum; stærðarskilyrðið var fellt út 29.8.2024 en gildið stendur.
Brennisteinsdíoxíð kg á tonn áls
Heildarbrennisteinn frá kerskálum, umreiknaður sem SO₂.
- Norðurál: Heildarbrennisteinn sem SO₂, að meðtöldum brennisteini úr súráli og sem COS.
- Rio Tinto á Íslandi: Heildarbrennisteinn sem SO₂; þar af mest 15,0 kg/t frá rafskautum.
- Alcoa Fjarðaál: Brennisteinssambönd umreiknuð sem SO₂, frá forskautum og súráli.
- Alcoa Fjarðaál: Mark á SO₂ frá raflausnarkerjum eingöngu; talan á ritinu er heildin, með súráli.
Tölurnar
Fyrir hvert ár er notuð nýjasta útgáfa sem birtir það: fyrirtækin leiðrétta stundum eldri tölur, og þá stendur fyrri talan í athugasemd. Framleiðsla er í tonnum áls, losun í kg á tonn.
Norðurál
| Ár | Framleiðsla | Heildarflúoríð | Ryk | Brennisteinsdíoxíð | Heimild | Athugasemd |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2025 | 260.158 | 0,34 | 0,65 | 9,76 | Grænt bókhald 2025 (2026), bls. 4 og 7 | |
| 2024 | 308.355 | 0,32 | 0,74 | 10,24 | Grænt bókhald 2025 (2026), bls. 4 og 7 | |
| 2023 | 310.421 | 0,35 | 0,75 | 9,76 | Grænt bókhald 2025 (2026), bls. 4 og 7 | |
| 2022 | 306.267 | 0,40 | 0,71 | 11,69 | Grænt bókhald 2025 (2026), bls. 4 og 7 | |
| 2021 | 315.182 | 0,38 | 0,71 | 10,62 | Grænt bókhald 2024 (2025), bls. 4 og 7 | |
| 2020 | 312.629 | 0,38 | 0,70 | 8,64 | Grænt bókhald 2024 (2025), bls. 4 framleidsla: Grænt bókhald 2023 (2024), bls. 7 | |
| 2019 | 315.867 | 0,38 | 0,74 | 10,83 | Grænt bókhald 2021 (2022), bls. 4 og 7 | |
| 2018 | 317.386 | 0,38 | 0,73 | 9,37 | Grænt bókhald 2020 (2021), bls. 8 og 13 | |
| 2017 | 317.179 | 0,29 | 0,64 | 8,89 | Grænt bókhald 2018 (2019), bls. 2 framleidsla: Grænt bókhald 2019 (2020), bls. 8 | |
| 2016 | 313.050 | 0,35 | 0,69 | 9,30 | Grænt bókhald 2018 (2019), bls. 2 og 10 | Grænt bókhald 2016 var ekki gefið út á vef Norðuráls; tölurnar eru úr grænu bókhaldi 2018 á ust.is. |
| 2015 | 311.911 | 0,30 | 0,62 | 10,90 | Grænt bókhald og lykiltölur 2015 (2016), bls. 25 framleidsla: Grænt bókhald 2018 (2019), bls. 10 | |
| 2014 | 298.388 | 0,32 | 0,68 | 10,9 | Grænt bókhald 2014 (2015), bls. 10 framleidsla: Grænt bókhald 2018 (2019), bls. 10 | |
| 2013 | 294.090 | 0,35 | 0,71 | 11,4 | Grænt bókhald 2013 (2014), bls. 9 framleidsla: Grænt bókhald 2018 (2019), bls. 10 | |
| 2012 | 286.457 | 0,41 | 0,84 | 12,06 | Grænt bókhald 2012 (2013), bls. 20 framleidsla: Grænt bókhald 2018 (2019), bls. 10 | |
| 2011 | 280.300 | 0,45 | 0,80 | 11,8 | Grænt bókhald 2011 (2012), bls. 11 framleidsla: Grænt bókhald og lykiltölur 2015 (2016), bls. 27 | |
| 2010 | 276.113 | 0,41 | 0,81 | 11,2 | Grænt bókhald 2010 (2011), bls. 10 framleidsla: Grænt bókhald 2014 (2015), bls. 11 | |
| 2009 | 278.244 | 0,43 | 0,87 | 12,5 | Grænt bókhald 2009 (2010), bls. 10 framleidsla: Grænt bókhald 2013 (2014), bls. 10 | |
| 2008 | 273.825 | — | 0,9 | 12,6 | Grænt bókhald vegna ársins 2008 (2009), bls. 6 framleidsla: Grænt bókhald 2012 (2013), bls. 23 | Heildarflúor ekki birtur sem ein tala, aðeins loftkennt flúoríð 0,42 og flúoríð í ryki 0,1 kg/t. |
| 2007 | 238.041 | — | 1,1 | 9,3 | Grænt bókhald vegna ársins 2007 (2008), bls. 6 framleidsla: Grænt bókhald 2011 (2012), bls. 12 | Heildarflúor ekki birtur sem ein tala, aðeins loftkennt flúoríð 0,53 og flúoríð í ryki 0,13 kg/t. |
| 2006 | 161.511 | — | 1,1 | 11,3 | Grænt bókhald vegna ársins 2006 (2007), bls. 6 framleidsla: Grænt bókhald 2010 (2011), bls. 11 | Heildarflúor ekki birtur sem ein tala, aðeins loftkennt flúoríð 0,64 og flúoríð í ryki 0,16 kg/t. |
| 2005 | 93.425 | — | 0,91 | 8,5 | Grænt bókhald vegna ársins 2005 (2006), bls. 6 framleidsla: Grænt bókhald 2009 (2010), bls. 11 | Heildarflúor ekki birtur sem ein tala, aðeins loftkennt flúoríð 0,43 og flúoríð í ryki 0,13 kg/t. |
| 2004 | 92.949 | — | 0,9 | 8,22 | Grænt bókhald vegna ársins 2004 (2005), bls. 5 og 10 | Heildarflúor ekki birtur sem ein tala, aðeins loftkennt flúoríð 0,35 og flúoríð í ryki 0,1 kg/t. |
| 2003 | 90.808 | — | 0,82 | 7,54 | Grænt bókhald vegna ársins 2003 (2004), bls. 5 og 11 | Heildarflúor ekki birtur sem ein tala, aðeins loftkennt flúoríð 0,27 og flúoríð í ryki 0,1 kg/t. |
Rio Tinto á Íslandi
Alcoa Fjarðaál
| Ár | Framleiðsla | Heildarflúoríð | Ryk | Brennisteinsdíoxíð | Heimild | Athugasemd |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2025 | 351.059 | 0,33 | 0,34 | 12,26 | Samfélagsskýrsla 2025 (2026), bls. 17 | Í texta skýrslunnar (bls. 18) stendur ryk 0,30; taflan segir 0,34. |
| 2024 | 340.826 | 0,33 | 0,30 | 13,14 | Samfélagsskýrsla 2025 (2026), bls. 17 | |
| 2023 | 346.874 | 0,35 | 0,43 | 12,94 | Samfélagsskýrsla 2025 (2026), bls. 17 | |
| 2022 | 331.574 | 0,32 | 0,35 | 13,15 | Samfélagsskýrsla 2024 (2025), bls. 35 | |
| 2021 | 317.869 | 0,34 | 0,38 | 13,34 | Samfélagsskýrsla 2023 (2024), bls. 13 | |
| 2020 | 334.619 | 0,34 | 0,39 | 14,32 | Samfélagsskýrsla 2023 (2024), bls. 13 | |
| 2019 | 334.858 | 0,34 | 0,40 | 13,95 | Samfélagsskýrsla 2022 (2023), bls. 13 | |
| 2018 | 346.535 | 0,29 | 0,40 | 13,74 | Samfélagsskýrsla 2021 (2022), bls. 11 | |
| 2017 | 353.733 | 0,24 | 0,30 | 14,10 | Samfélagsskýrsla 2020 (2021), bls. 11 | |
| 2016 | 329.994 | 0,25 | 0,36 | 14,08 | Samfélagsskýrsla 2019 (2020), bls. 10 | |
| 2015 | 344.907 | 0,29 | 0,43 | 14,93 | Samfélagsskýrsla 2018 (2019), bls. 10 | |
| 2014 | 335.560 | 0,27 | 0,35 | 15,54 | Samfélagsskýrsla 2017 (2018), bls. 17 | |
| 2013 | 349.910 | 0,24 | 0,30 | 15,18 | Samfélagsskýrsla 2016 (2017), bls. 9 | Í grænu bókhaldi 2013 stóð SO₂ 14,99 kg/t; leiðrétt í 15,18 frá grænu bókhaldi 2014. |
| 2012 | 344.632 | 0,32 | 0,46 | 15,38 | Grænt bókhald 2015 (2016), bls. 9 | Fyrirvari vegna óvissu um losun ryks um reykháf á tímabilinu maí–ágúst 2012 (Grænt bókhald 2015, bls. 11). Í grænu bókhaldi 2012 stóð loftkennt flúoríð 0,20 kg/t. |
| 2011 | 340.752 | 0,22 | 0,23 | 14,66 | Grænt bókhald 2014 (2015), bls. 9 | |
| 2010 | 352.781 | 0,31 | 0,38 | — | Grænt bókhald 2013 (2014), bls. 11 | Aðeins SO₂ frá forskautum birt: 12,31 kg/t. |
| 2009 | 349.504 | 0,33 | 0,32 | — | Grænt bókhald 2011 (2012), bls. 13 framleidsla: Grænt bókhald 2011 (2012), bls. 11 | Aðeins SO₂ frá forskautum birt: 11,49 kg/t. |
| 2008 | 319.929 | 0,35 | 0,42 | — | Grænt bókhald 2010 (2011), bls. 13 framleidsla: Grænt bókhald 2010 (2011), bls. 11 | Heildartala SO₂ með súráli ekki birt. Birt er 11,32 kg/t, líklega frá forskautum eingöngu eins og 2009–2010. Í grænu bókhaldi 2008 stóð heildarflúoríð 0,34 kg/t. |
Mörkin: Starfsleyfi Norðuráls Grundartanga, 16.12.2015, gr. 3.9; Starfsleyfi Alcan á Íslandi, 7.11.2005, gr. 2.5; Starfsleyfi Rio Tinto á Íslandi, UST202004-303, 28.10.2021, gr. 3.8; Starfsleyfi Alcoa Fjarðaáls, 8.11.2010, gr. 2.5; Starfsleyfi Alcoa Fjarðaáls, UST202003-451, 13.12.2024, gr. 3.8.