Innfelling
Settu loftgæði næstu mælistöðvar á eigin vef. Spjaldið sýnir nýjustu mælingu hvers efnis og hlutfall af heilsuverndarmörkum, og uppfærist sjálft á tíu mínútna fresti. Veldu stöð, afritaðu kóðann og límdu hann inn á síðuna þína.
Forskoðun
Gott að vita
- Talan er nýjasta klukkustundin. Hlutfallið er reiknað af þeirri stærð sem markið á við, oftast sólarhringsmeðaltali, og spjaldið segir hver hún er.
- Sólarhringsgildi PM₂,₅ er borið við leiðbeiningargildi WHO, sem er ekki lögbundið. Það er merkt þannig á spjaldinu.
- Tölurnar koma beint úr sjálfvirkum mælum og enginn les yfir þær áður. Mælar geta sýnt röng gildi.
- Spjaldið setur engar vafrakökur og fylgist ekki með lesendum. Tengillinn neðst opnar stöðvarsíðuna á Móðu með allri sögu stöðvarinnar.